DESEMBERUPPBÓT - kr. 63.800 með álagi
30. nóvember 2011
Desemberuppbótin á almennum markaði, að meðtöldu orlofi, er kr. 48.800 og skal greiðast í síðasta lagi 15. desember miðað við
starfshlutfall og starfstíma. Samhliða desemberuppbót skal greiða sérstakt álag kr. 15.000.
Starfsmenn sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi 1.desember eiga
rétt á desemberuppbót. Starfsmenn í ákvæðisvinnu fá greidda desemberuppbót líkt og aðrir. Sá tími sem
starfsmaður er í fæðingarorlofi telst sem starfstími við útreikning desemberuppbótar.
Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla desemberuppbót.
Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.
Sjá útreikning desemberuppbótar.






