Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri

Félag málmiðnaðarmanna Akureyri er stofnað á Akureyri 23. janúar 1941. Félagssvæði þess er Akureyri, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit og aðrir hreppar Eyjafjarðarsýslu, einnig Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur. Félagið er aðili að Samiðn sem er aðili að Alþýðusambandi Íslands.

Fréttir

Breyting á skattlagningu séreignarsparnaðar er inngrip í kjarasamninga

Miðstjórn Samiðnar lýsir mikilli andstöðu við tillögu ríkisstjórnarinnar um einhliða breytingu á skattlagningu séreignarsparnaðar og lítur á það sem alvarlegt inngrip í frjálsa kjarasamninga. Miðstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær 31.október ályktun þar sem áformum ríkisstjórnarinnar er harðlega mótmælt:

"Miðstjórn Samiðnar lýsir mikilli andstöðu við tillögu ríkisstjórnarinnar um einhliða breytingu á skattlagningu séreignarsparnaðar sem fram kemur í fjárlagafrumvarpinu.

Fyrirkomulag skattlagningar á séreignarsparnaði var og er hluti af samkomulagi milli stjórnvalda og stéttarfélaga og er því hluti af kjarasamningum. Einhliða ákvörðun stjórnvalda um breytingar á því samkomulagi er mjög alvarlegt inngrip í frjálsa kjarasamninga.

Við þær fjárhagslegu aðstæður sem íslenskt þjóðfélag býr við nú, er mikilvægt að hvetja almenning til sparnaðar og leggja fyrir til elliáranna. Miðstjórnin krefst þess að ríkisstjórnin dragi til baka allar hugmyndir um breytingar á skattlagningu séreignarsparnaðar og hugmyndir um frekari skattlagningu á lífeyrissjóði. Jafnframt vill miðstjórn Samiðnar minna á yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um jöfnun lífeyrisréttinda sem fylgdu síðustu kjarasamningum en lítið hefur farið fyrir tillögum þar um."



Mynd augnabliksins

21fe43406c359e0043736552e7a649c9.jpg

Póstlistar

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 7107

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn