Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri

Félag málmiðnaðarmanna Akureyri er stofnað á Akureyri 23. janúar 1941. Félagssvæði þess er Akureyri, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit og aðrir hreppar Eyjafjarðarsýslu, einnig Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur. Félagið er aðili að Samiðn sem er aðili að Alþýðusambandi Íslands.

Fréttir

Ályktun formannafundar ASÍ um stöðu og réttindi atvinnuleitenda

Íslenskt samfélag tekst í dag á við alvarlegar afleiðingar efnahagshrunsins. Ein versta birtingarmynd þess er fækkun starfa og atvinnuleysið sem því fylgir. Heilar atvinnugreinar og landssvæði glíma við mikinn samdrátt á öllum sviðum. Langtímaatvinnuleysi fer vaxandi og bitnar verst á ungu fólki og fólki með litla formlega menntun.


Alþýðusamband Íslands hefur haft forystu um að bæta kjör og réttindi atvinnuleitenda, ásamt því að treysta stöðu þeirra á vinnumarkaði og í samfélaginu. Það hefur verið gert með lengingu bótatímabilsins, auknum sveigjanleika kerfisins og náms- og starfstengdum úrræðum fyrir atvinnuleitendur. Þannig hefur ASÍ varið hag atvinnuleitenda um leið og þeim er gert kleift að búa sig undir virka þátttöku á vinnumarkaði. Samtímis þessu hefur Alþýðusambandið áréttað að forsenda þess að takast á við og uppræta atvinnuleysi er öflugt atvinnulíf sem skapar fjölbreytt og góð störf fyrir alla.

Eftir það sem þó hefur áunnist er sú sýn sem birtist í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar einkar dapurleg. Úrræðin sem ríkisstjórnin sjálf hefur fram að færa eru svikin loforð og sveltistefna. Atvinnuleysisbætur eiga ekki að hækka í samræmi við það sem um var samið í vor og í reynd lækka þær að raungildi. Nema á úr gildi bráðabirgðaákvæði um lengingu bótatímabils og setja atvinnuleitendum sem hafa verið án atvinnu í þrjú ár tímabundið afarkosti með því að taka af þeim bótaréttin og vísa á takmarkaðan framfærslustuðning sveitarfélaganna, þótt ljóst sé að aðeins hluti þeirra eigi þar einhvern rétt. Um þessa sveltistefnu ríkisstjórnarinnar getur aldrei orðið sátt.

Gegn svikum og uppgjöf stjórnvalda eins og þau birtast í fjárlagafrumvarpinu áréttar ASÍ að takast verður á við vandann af framsýni. Læra þarf af reynslunni, þróa og nýta þau úrræði sem gagnast hafa best.

Alþýðusamband Íslands krefst þess að stjórnvöld standi við hækkun atvinnuleysisbóta og lengingu bótatímabils sem lofað var í kjarasamningunum í maí sl. Jafnframt verði gerðar nauðsynlegar lagfæringar á lögunum til að tryggja nauðsynlegan sveigjanleika og heimildir vegna úrræða fyrir atvinnuleitendur.

Alþýðusamband Íslands krefst þess að stjórnvöld kviki ekki frá þeirri braut sem mörkuð var sl. vor og áréttuð var í kjarasamningunum um að efla þjónustu og úrræði fyrir atvinnuleitendur með  samþættum aðgerðum á sviði menntunar, starfsþjálfunar og virkni af öðru tagi. Það á sérstaklega við um þann hóp sem farið hefur verst út úr samdrættinum á vinnumarkaði, langtímaatvinnulausa, ungt fólk og launafólk með litla formlega menntun. Þetta á einnig við um þá sem þurfa á endur- og viðbótarmenntun að halda til annarra starfa vegna breytinga í atvinnulífinu. Þá leggur ASÍ áherslu á mikilvægi virkrar og öflugrar vinnumiðlunar.

Það er krafa Alþýðusambandsins að nú þegar verði hrint af stað tilraunaverkefni sem miðar að því að stéttafélögin taki í ríkara mæli að sér framkvæmd atvinnuleysistrygginga, vinnumiðlunar og virkra vinnumarkaðsaðgerða líkt og gert hefur verið með góðum árangri í menntun á vinnumarkaði og starfsendurhæfingu.

 



Mynd augnabliksins

a141cc68f092e616012700ad2d4beab4.jpg

Póstlistar

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 7107

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn