Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri

Félag málmiðnaðarmanna Akureyri er stofnað á Akureyri 23. janúar 1941. Félagssvæði þess er Akureyri, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit og aðrir hreppar Eyjafjarðarsýslu, einnig Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur. Félagið er aðili að Samiðn sem er aðili að Alþýðusambandi Íslands.

Nýjustu fréttir

Ályktun frá miðstjórn Samiðnar

Miðstjórn Samiðnar hefur samþykkt ályktun þar sem pólitískum inngripum Alþingis í rammaáætlun um orkunýtingu er harðlega mótmælt og alþingismenn hvattir til að samþykkja upphaflegu áætlunina sem byggir á faglegu mati og forsendum sátta í samfélaginu um orkunýtingu.

Lesa meira

1. maí hátíðarhöld á Akureyri


Fjöldi fólks tók þátt í kröfugöngu sem stéttarfélögin á Akureyri stóðu fyrir í gær 1. maí, á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks. Kjörorð dagsins voru; "Vinna er velferð" Gengið var frá Alþýðuhúsinu í mjög góðu veðri, gegnum miðbæinn og að Hofi, þar sem fram fór dagskrá í tilefni dagsins. Húsfyllir var í Hofi, þar sem Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, formaður FVSA, flutti ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna við Eyjafjörð og Stefán Einar Stefánsson, formaður LÍV og VR, flutti aðalræðu dagsins. Lesa meira

1. maí – Allir að mæta


Minnum á dagskrá í tilefni 1. maí – Alþjóðlegs baráttudags verkafólks. Sýnum samstöðu og tökum þátt í hátíðarhöldunum þann 1. maí nk. á Akureyri og í Fjallabyggð. “Vinna er velferð”eru kjörorð dagsins. 1. maípennar verða seldir í tilefni dagsins. Dagskrá má sjá hér fyrir neðan. Lesa meira

Glærur frá 11. apríl

Glærur sem Kristján Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins, fór yfir í sinni framsögn á félagsfundi FMA sem fram fór miðvikudaginn 11. april sl. eru komnar á netið,


Tillögur félagsfundar FMA

Tillögur til stjórnar og Sameinaða lífeyrissjóðsins samþykktar á félagsfundi í Félagi málmiðnaðarmanna Akureyri þann 11. apríl 2012. Lesa meira

Mynd augnabliksins

b732ccbb7dcbe3dafda098df315bb50b.jpg

Póstlistar

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 7107

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn